Hafa samband?
Allar ábendingar, villur eða góðar hugmyndir eru vel þegnar!
Algengar spurningar
Hvernig sæki ég appið?
Vinir er aðgengilegt í App Store — sæktu appið hér.
Er Vinir í boði á Play Store?
VINIR er á leiðinni í Play Store. Þú getur skráð þig á póstlistann okkar og verið með þeim fyrstu til að fá appið.
Er Vinir ókeypis?
Já, einstaklingsaðgangar eru ókeypis.
Get ég notað Vinir án símanúmers?
Já — þú getur skráð þig inn með Apple ID eða Google-aðgangi í staðinn fyrir símanúmer.
Hvernig stofna ég vinahóp?
Opnaðu Vinir → Vinahópar → ýttu á + táknið efst „Nýr vinahópur". Gefðu vinahópnum nafn, lýsingu og mynd (valkvætt), og bjóddu vinunum þínum í hópinn.
Hvernig finn ég besta tímann fyrir alla?
Stofnaðu hitting í vinahópnum og veldu „Vinahópur velur tíma" í staðinn fyrir fastan tíma. Vinirnir fá tilkynningu og velja þá tímasetningu sem henta þeim best. Þú sérð yfirlit í „Sjá tillögur" og staðfestir tímann sem flestir komast á.
Hvernig bæti ég maka við?
Opnaðu Prófíll → ýttu á „Bjóða maka" undir Maki. Veldu maka úr vinalistanum eða sendu makaboð. Þegar makinn samþykkir getið þið deilt ykkar dagatali.
Hvernig eyði ég reikningnum mínum?
Opnaðu appið → Prófíll → Notendastillingar → Eyða reikningi. Öll þín gögn verða eytt strax (sjá persónuverndarstefnu fyrir nánari upplýsingar).
Hvar finn ég persónuverndarstefnu og skilmála?
Þú getur lesið persónuverndarstefnu okkar og notendaskilmála hér.
Ég fann villu í appinu — hvað á ég að gera?
Opnaðu appið → Prófíll → Hafa samband og sendu okkur skilaboð. Skilaboðin koma beint til okkar með upplýsingum um tækið þitt og útgáfuna af appinu, svo við getum lagað villuna hraðar.
Tengiliður
Netfang: vinir@vinirapp.is